Fréttir

Þorskur í eldi.

18.02.2008 Fréttir Trollveiði á þorski stöðvuð í Ísafjarðardjúpi

Sjávarútvegsráðuneytið hefur stöðvað trollveiði á lifandi þorski til áframeldis í Ísafjarðardjúpi. Veiðst hafa um 65 tonn af þorskinum en ýsu-meðaflinn slagar upp í þúsund tonn. Lesa meira

18.02.2008 Fréttir Ný sjávarútvegssamtök stofnuð

Framtíðin, samtök sjálfstæðra í sjávarútvegi, voru stofnuð á Akureyri í gær. Tilgangur félagsins er meðal annars að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum félagsmanna, tryggja að eðlilegar samkeppnis- og jafnræðisreglur séu virtar í sjósókn á Íslandi og að vinna ötullega að víðsýnni og opinni umræðu um breytta og árangursríka fiskveiðistjórn. Lesa meira
Þorskur

18.02.2008 Fréttir Styrkir úr samkeppnisdeild Verkefnasjóðs sjávarútvegsins

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Einar K. Guðfinnsson, hefur veitt styrki úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði, samtals 50 milljónir króna. Lesa meira
Rannsóknaskipið´Árni Friðriksson

18.02.2008 Fréttir Lokaátak í loðnumælingu og loðnuleit stendur yfir

Á laugardagsmorguninn fór R/S Árni Friðriksson vestur fyrir landið til leitar og mælinga, en R/S Bjarni Sæmundsson var þá staddur út af Suðausturlandi og hóf strax könnun á svæðinu frá Hjörleifshöfða og austur um. Í dag var svo áætlað að þrjú loðnuveiðiskip hefðu leit út af Austfjörðum og á Norðurmiðum. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki á miðvikudag og að Hafrannsóknastofnunin byggi tillögur sínar um framhald veiða á þeim niðurstöðum. Lesa meira
Loðna

18.02.2008 Fréttir Loðnan farin að ganga á grunnið

Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá allgóðan afla. Hafrannsóknaskip er komið á svæðið og eru vonir bundnar við að fiskifræðingum takist að mæla stofninn á næstu dögum, að því er fram kemur á Visir.is Lesa meira

 

Leit í skipaskrá


Innskráning