Ýsuflök
Ýsuflök
© Heimasíða LS.

Bandarísk heilsubúðakeðja vill íslenskan trillufisk

8.5.2006

Fulltrúar Landssambands smábátaeigenda ásamt fleirum hafa átt viðræður við fulltrúa Whole Foods Market, sem er þekkt verslanakeðja í Bandaríkjunum sem selur lífrænt ræktaðar afurðir og svokallaðar náttúruafurðir. Þetta kemur fram í nýjustu Fiskifréttum. Markmiðið er koma fiski frá íslenskum trillukörlum inn í þessar búðir, en þar er nú þegar selt íslenskt skyr og íslenskt smjör.

 

,,Ég hef átt viðræður við þessa aðila bæði erlendis og hér heima og unnið er að því að dæmið gangi upp. Til þess að svo verði þarf að setja upp kerfi rekjanleika vörunnar alveg frá því að fiskurinn er veiddur og þar til hann er kominn í hendur neytenda. Við eigum von á fulltrúum frá Whole Foods Market hingað til lands innan skamms og vonandi verður þá hægt að ganga frá einhvers konar samkomulagi, en ég lít á þetta sem stórmál,” segir Arthur Bogason formaður Landssambands smábátaeigenda í samtali við Fiskifréttir.
 
,,Whole Foods Market gerir mjög strangar kröfur um lífræna ræktun afurðanna og um sjálfbæra nýtingu fiskistofna. Lögð er áhersla á að skipta við litla framleiðendur og þeir láta sig varða félagslegar afleiðingar ríkjandi stefnumiða í landbúnaði og sjávarútvegi á hverjum stað. Whole Foods Market er í örustum vexti allra matvöruverslana í Bandaríkjunum en nú þegar hafa verið stofnaðar á annað hundrað búðir og búist er við að þeim fjölgi um helming á næstu 4-5 árum. Þessar verslanir eru þær glæsilegustu sem ég nokkru sinni augum litið. Þetta eru dýrustu búðirnar á matvörumarkaðnum og þangað á fiskur íslenskra trillukarla tvímælalaust erindi, sé hann rétt meðhöndlaður hér heima. Þessir aðilar vilja kaupa héðan þorsk og ýsu og fá fiskinn ferskan. Okkar næsta skref er að velja báta og fiskvinnslustöð til þess að sinna þessu verkefni og útbúa þau upplýsingagögn sem óskað er eftir. Síðast þegar ég talaði við fulltrúa frá Whole Foods hafði hann það á orði að fyrirtækið kærði sig ekkert um þessi viðskipti nema það væri algjörlega tryggt að trillukarlinn á Íslandi fengi hærra verð en honum stæði til boða annars staðar. Þetta þótti mér afskaplega vænt um að heyra,” sagði Arthur. Fram kom í máli hans að ef af verkefninu yrði mætti gera ráð fyrir að því yrði hrint af stað eftir 5-6 mánuði. Þetta gerist reyndar ekki af sjálfu sér og því var sótt um aðstoð til AVS sjóðsins (Aukið verðmæti sjávarfangs) en svör frá honum eru ókomin enn.  
 

Til baka Senda grein Prenta greinina

 


 

Leit í skipaskrá


Innskráning