Fréttir

13.12.2002 Fréttir Björgvin á leið til Litháen með fullfermi af frystri síld

Flutningaskipið Björgvin, sem nýlega var keypt til landsins, er nú á leið til Litháen með fullfermi af frystri síld sem SÍF sá um sölu á. Skipið lestaði síld í Reykjavík og Vestmannaeyjum og þaðan hélt það áleiðis til Klaipeda í Litháen.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Norsk fyrirtæki tapa upp til hópa á laxeldinu

Arne Nore forstjóri norsku fiskeldissamsteypunnar Pan Fish segir að veikur markaður fyrir eldislax og hátt gengi norsku krónunnar skýri þau miklu vandræði sem fyrirtækið er komið í. Nýlega tóku helstu lánardrottnar Pan Fish fyrirtækið í nokkurs konar gjörgæslu og geta stjórnendur félagsins engar ákvarðanir tekið án þess að bera þær fyrst undir bankana.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Gætum fyllt bátinn af tindabikkju á einum til tveimur dögum

Töluvert hefur borið á tindabikkju sem aukaafla hjá dragnótabátunum sem stunda kolaveiðarnar í Faxaflóanum. Svavar Ágústsson, skipstjóri á Rúnu RE, segir mikið vera af tindabikkju á veiðislóðinni og að hægur vandi væri að fylla bátinn á einum til tveimur dögum ef menn legðu sig eftir tindabikkjunni.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Tæplega 70 þúsund tonn af síld komin á land

Búið er að landa 69.700 tonnum af síld á vertíðinni samkvæmt tilkynningum til Fiskistofu. Eftirstöðvar kvótans eru nú rétt ræp 60 þúsund tonn og útlitið varðandi framhald veiðanna er ekkert of gott.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Fiskimjölsframleiðsla dregst saman í Perú

Framleiðsla á fiskimjöli hefur dregist verulega saman í Perú í kjölfar veiðibanna og minnkandi ansjósuveiði. Í október sl. voru t.d. aðeins framleidd 58.600 tonn af mjöli á móti 132.000 tonnum í sama mánuði í fyrra.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Erfiðleikar hjá norskum saltfiskverkendum

Útflutningur á saltfiski frá Noregi hefur dregist saman um tæp 4000 tonn það sem af er árinu í samanburði við sama tímabil í fyrra. Verð á saltfiski hefur einnig lækkað milli ára eða að jafnaði um 58 ísl. kr/kg.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir 7000 krónur fyrir kíló af þorskflökum

Verð á ferskum þorskflökum hefur farið upp í tæpar 7000 ísl. krónur fyrir kílóið í fiskbúðum í Stokkhólmi að undanförnu. Þorskveiðibanninu í Eystrasalti er þökkuð verðhækkunin.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Sjávarútvegsráðherra í viðtali hjá CNN International

Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN fjallaði sl. miðvikudag um slæma stöðu sjávarútvegs í Evrópusambandslöndunum, en eins fram hefur komið í fréttum hefur framkvæmdastjórn ESB lagt til að þorskkvótinn verði skertur um 79%. Í umfjöllun sinni lagði fréttaskýrandinn áherslu á að þessi staða væri þó ekki algild í Evrópu þar sem Ísland væri undantekning.

Lesa meira

13.12.2002 Fréttir Mjóafjarðarlax á erlenda markaði

Eldislaxi, frá laxeldisstöð Sæsilfurs í Mjóafirði, hefur undanfarið verið slátrað hjá Síldarvinnslunni. Nú er búið að senda um 100 tonn af laxi á erlendan markað og á milli 50 og 60 tonn til viðbótar fara utan í þessari viku.

Lesa meira

 

Leit í skipaskrá


Innskráning