Sameining Ísfells-Netasölunnar og Icedan í burðarliðnum
Stjórnendur Ísfells-Netasölunnar ehf. og ICEDAN ehf. hafa ákveðið að hefja náið samstarf fyrirtækjanna á sviði veiðarfæraþjónustu og sölu á útgerðar- og björgunarvörum á Íslandi.
Lesa meira100 ár liðin frá siglingu fyrsta mótorbátsins hérlendis
Um þessar mundir eru 100 ár liðin frá siglingu fyrsta mótorbátsins á Íslandi. Báturinn hét Stanley og var honum siglt frá Ísafirði til Hnífsdals 25. nóvember árið 1902. Tímamótanna verður minnst með veglegum hætti á Ísafirði um helgina.
Lesa meiraStjórnun fiskveiða í Namibíu reynist vel
Erlendir sérfræðingar á sviði sjávarútvegs hrósa Namibíumönnum fyrir fiskveiðistjórnunarkerfið sem þar var innleitt fyrir um áratug. Þeir segja að kerfið hafi hjálpað til við að byggja upp fiskistofna sem verið höfðu ofveiddir á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.
Lesa meiraSíldaraflinn stendur í 50 þúsund tonnum
Búið er að veiða tæplega 50 þúsund tonn af síld á vertíðinni eða 38,4% af leyfilegum heildarafla. Aflahæsta skipið er Örn KE með 4992 tonn en alls hafa þrjú skip fengið meira en 4000 tonna afla á vertíðinni.
Lesa meiraEr verið að reyna að þvinga Ísland og Noreg inn í ESB?
Svo er að sjá og heyra að kröfur Evrópusambandsins um margföldun á greiðslum EES-ríkjanna í þróunarsjóð sambandsins hafi haft þau áhrif í Noregi að stöðugt fleiri framámenn í norskum sjávarútvegi eru að komast á þá skoðun að réttast sé að afskrifa EES-samninginn en sækja þess í stað um aðild að ESB.
Lesa meiraSiggi Bjarna GK með mestan skötuselsafla
Siggi Bjarna GK er það skip landsmanna sem veitt hefur mest af skötusel það sem af er fiskveiðiárinu. Afli skipsins var í byrjun vikunnar kominn í 18,1 tonn.
Lesa meiraÞorskafli breskra skipa hefur dregist saman um 18%
Þorskafli breskra skipa, sem landað er á Bretlandseyjum, dróst saman um 18% á fyrri hluta ársins í samanburði við sama tímabil í fyrra. Alls var landað 11.200 tonnum af þorski fyrstu sex mánuði ársins og nam aflaverðmætið um 1443 milljónum ísl. króna.
Lesa meira