Úthafskarfaaflinn aðeins þriðjungur af aflanum í fyrra
- aflinn heldur að glæðast
Úthafskarfaveiðarnar hafa heldur glæðst að undanförnu eftir dapurt gengi í vor og framan af sumri. Samkvæmt tölum Fiskistofu í dag er aðeins búið að skrá löndun á 13.900 tonnum af úthafskarfa á þessu ári samanborið við rúm 40.000 tonn á sama tíma í fyrra.
Frystitogarinn Venus HF 519 landaði hjá HB Granda í Reykjavík á mánudag eftir 25 daga veiðiferð. Aflinn var 775 tonn upp úr sjó og aflaverðmætið 61 milljón króna. Fleiri togarar sem fóru út eftir sjómannadag hafa verið að landa að undanförnu. Þannig kom Rán HF-42 inn til löndunar í Hafnarfirði á miðvikudagsmorgun með nær fullfermi, eða 18 þúsund kassa.
Trausti Egilsson, skipstjóri á Örfirisey RE-4, segir að aflinn hafi verið að glæðast síðustu vikuna. Þeir voru staddir á 61°50’ norður og 30°11’ vestur, þegar Fiskifréttir slógu á þráðinn síðdegis á miðvikudag. Hann sagðist vera um það bil hálfnaður með túrinn.
“Ætli það megi ekki segja að þetta sé allt í lagi. Það er slæðingur af skipum hérna. Svo eru líka skip hérna 40-50 mílum norðar. Það eru bæði Íslendingar og útlendingar, en allt í sátt og samlyndi. Ástandið er þokkalegt eins og er og ágætis karfi. Þetta er samt ekkert stórt svæði sem við erum að veiða á. Veðrið er líka þokkalegt, sunnanátt og það hvítnar aðeins í báru. Það var þó hálf leiðinlegt hér fyrir svona viku síðan,” sagði Trausti Egilsson.
