554 þús. tonna loðnukvóta úthlutað
Sjávarútvegsráðherra hefur undirritað reglugerð um 554 þúsund tonna loðnukvóta á yfirstandandi vertíð. Frá honum dragast 7.400 tonn sem handhafar veiðiheimildanna skulu leggja í ýmsa ,,potta“ samkvæmt lögum sem sett voru á síðasta ári.
Lesa meira
Loðnukvóti HB Granda rúmlega 100 þús. tonn
,,Hlutdeild HB Granda í heildaraflamarki Íslendinga á loðnu nemur 18,6% og verði farið eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þá mun loðnukvóti skipa félagsins losa 100 þúsund tonn á yfirstandandi vertíð," segir Vilhjálmur Vilhjálmsson, deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda á vef fyrirtækisins.
Lesa meira
|
Franski markaðurinn orðinn nær jafnstór þeim breska
Bretlandsmarkaður hefur hingað til verið langmikilvægasta sölusvæði Íslands fyrir ferskar unnar fiskafurðir. Það hlýtur því að teljast til nokkurra tíðinda að útflutningur á þessum vörum frá Íslandi til Frakklands skuli á síðasta ári hafa orðið nær jafnmikill og til Bretlands.
Lesa meira
|
|
| |
Loðnukvótinn ávísun á 30 milljarða króna
Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að leyfilegur hámarksafli á loðnuvertíðinni 2011/2012 verði ákveðinn 765 þúsund tonn, að meðtöldum þeim afla sem búið var að veiða þegar mælingar fóru fram.
Lesa meira
|
Norðurlönd heimsins stærsti fiskútflytjandi
Útflutningsverðmæti sjávarafurða frá Norðurlöndunum nam 15 milljörðum bandaríkjadala árið 2007 eða jafnvirði 1.830 milljarða íslenskra króna á núverandi gengi. Það gerir Norðurlöndin sem heild að stærsta fiskútflytjenda í heiminum.
Lesa meira
|
Íslenski loðnukvótinn 400.000 tonn?
Ekki liggur fyrir hver verður endanlegur loðnukvóti Íslendinga á þessari vertíð, en ef tekið er mið af fyrstu mælingu Hafrannsóknastofnunar á loðnustofninum á þessu ári má gróflega ætla að heildarkvótinn verði tæp 600 þúsund tonn, þar af komi um 400 þúsund tonn í hlut íslenskra skipa, að sögn Friðriks J. Arngrímssonar framkvæmdastjóra LÍÚ.
Lesa meira
|
Línulúðan á mestu lífsmöguleikana
Allsherjarlúðuveiðibann tók gildi um síðustu áramót sem kunnugt er. Þessar ráðstafanir fela meðal annars í sér að sjómönnum er skylt að sleppa lífvænlegri lúðu aftur í sjóinn. En hversu líklegt er að sú lúða lifi af?
Lesa meira
|
Síldarmælingum lýkur í dag
Undanfarnar vikur hefur staðið yfir mæling á stærð veiðistofns sumargotssíldar við Ísland. Auk rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar, sem lýkur sínum þætti í dag, sinnti Dröfn rannsóknum í Breiðafirði. Bjarni Sæmundsson kannaði djúpslóðina frá svæðinu út af Breiðafirði og allt austur að Suðausturlandi.
Lesa meira
|
Kominn í toppslaginn á ný
Krókaaflamarksbáturinn Vilborg ÍS frá Bolungarvík varð aflahæsti smábáturinn í desember síðastliðnum, fékk 136 tonn í 23 róðrum.
Lesa meira
|







